Hoppa yfir valmynd

20 ára starfsaf­mæli í leik­skól­anum á Bíldudal

Tveir starfs­menn leik­skólans á Bíldudal fagna 20 ára starfsaf­mæli á þessu ári. Elín­borg Anika Bene­dikts­dóttir hóf störf í febrúar 2006 og Lára Þorkels­dóttir í sept­ember sama ár. Vest­ur­byggð og starfs­fólk Bíldu­dals­skóla óska þeim inni­lega til hamingju með 20 ára starfsaf­mælið og áfram­hald­andi farsældar í starfi.


Skrifað: 25. ágúst 2026

Á þessum tveimur áratugum hafa Ella og Lára fylgt fjölmörgum börnum í gegnum leikskólagönguna og verið mikilvægur hluti af starfi leikskólans. Á löngum starfsferli hafa þær byggt upp mikla reynslu og þekkingu sem nýtist sannarlega bæði börnum og samstarfsfólki. Þær hafa átt stóran þátt í að skapa gott og hlýlegt umhverfi fyrir börn og fjölskyldur þeirra á Bíldudal.

Elínborg og Lára

Aðstoðarskólastjóri

LRR

liljarut@vesturbyggd.is/+354 450 2333