Félagsstörfin í bíó 4. apríl
Fimmtudaginn 4. apríl kl. 14:00 ætla selin, það er félagsstarf eldra fólks í öllu sveitarfélaginu, saman í Skjaldborgarbíó á Patreksfirði til að sjá kvikmyndina My Favourite Cake.
Skrifað: 31. mars 2025
Allt eldra fólk er hjartanlega velkomið.
Þetta er hjartnæm ástarsaga sem snertir hjörtu og sló í gegn á kvikmyndahátíðinni Berlinale þar sem hú nhlaut tvenn verðun. Myndin segir frá hinni sjötugu Mahin sem hefur búið ein í Tehran í Íran síðan eiginmaður hennar lést og dóttir hennar fór til Evrópu. Dag einn, þegar hún er að drekka te með vinum sínum, breytir hún út af vananum og blæs nýju lífi í ástarlíf sitt.
