Hoppa yfir valmynd

Móttaka fram­boðs­lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2026

Móttaka fram­boðs­lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2026 í Vest­ur­byggð verður í ráðhúsi Vest­ur­byggðar, Aðalstræti 75, Patreks­firði, föstu­daginn 10. apríl kl. 12:00


Skrifað: 31. mars 2026

Gögn sem þurfa að fylgja framboðum eru tilkynning um framboð þar sem fram kemur heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstafur þeirra. Einnig þarf að tilkynna hverjir tveir eru umboðsmenn listans ásamt samþykki þeirra. Jafnframt skal skila framboðslista með undirrituðu samþykki frambjóðenda sem má vera með rafrænni undirritun eða á pappír. Vesturbyggð býður framboðum að skila undirskriftum í rafrænu meðmælakerfi.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu landskjörstjórnar eða hjá yfirkjörstjórn Vesturbyggðar.

Finnbjörn Bjarnason, formaður, sími 892 7890.
Sigurvin Hreiðarsson, sími 891 8520.
Edda Kristín Eiríksdóttir, sími 831 9675.