Hoppa yfir valmynd

Ábyrgð og tillit­semi dýra­eig­enda – mikil­vægar ábend­ingar

Nú þegar vorið er komið og nátt­úran lifnar við viljum minna hunda- og katta­eig­endur í Vest­ur­byggð á mikil­vægar reglur og skyldur sem hvíla á hunda- og katta­eig­endum og að samfé­laginu og umhverfinu sé sýnd tillit­semi.


Skrifað: 20. maí 2025

Hundaeigendum ber skylda til að hirða upp eftir hundana sína, bæði innan þéttbýlis og á útivistarsvæðum. Hundakúkur mengar umhverfið, er til ama fyrir aðra og getur borið með sér sýkla. Þetta er lykilatriði til að halda umhverfi okkar hreinu og aðlaðandi fyrir alla. Jafnframt er minnt á að lausaganga hunda er óheimil í sveitarfélaginu.

Kattaeigendur eru einnig beðnir um að setja bjöllu á hálsólar katta sinna og halda þeim inni á nóttunni. Með því má draga verulega úr líkum á því að kettir veiði fugla, sem nú eru í varpi. Fuglalífið er viðkvæmt á þessum árstíma og við getum öll lagt okkar af mörkum til að vernda það.