Aðalinnritun á Arakletti
Komið er að því að huga að leikskólaplássi fyrir næsta vetur!
Skrifað: 26. maí 2026
Innritun á Araklett fer fram í tveimur þrepum. Í fyrsta þrepi er unnið úr þeim umsóknum sem berast í aðalinnritun ár hvert og er þeim börnum úthlutað plássi eftir aldri. Í öðru þrepi er unnið úr umsóknum sem berast eftir að aðalinnritun líkur og er þeim börnum úthlutað plássi eftir því sem mögulegt er hverju sinni.
Aðalinnritun á Arakletti mun vera í júní. Þá fá foreldrar væntanlegra nemenda sendan tölvupóst með upplýsingar um aðlögun. Til þess að umsókn sé tekin með í aðalinnritun þarf hún að berast í síðasta lagi 2. Júní 2026. Sótt er um leikskólapláss á íbúagáttinni, efst á heimasíðu Vesturbyggðar.
Sækja má um leikskóla frá fæðingardegi barns eða strax og kennitala þess hefur verið skráð. Skilyrði fyrir leikskólaplássi er að foreldri og barn eigi lögheimili í Vesturbyggð en hægt er að sækja um leikskólapláss ef lögheimili er væntanlegt, þó úthlutun og upphaf leikskólavistar eigi sér ekki stað fyrr en lögheimili er komið.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri: Bergdís Þrastardóttir