Álagning fasteignagjalda 2025
Álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2025 er lokið og eru álagningarseðlar nú aðgengilegir á island.is undir „Mínum síðum“ ásamt öllum breytingarseðlum þar á eftir.
Athygli er vakin á því að ekki verða sendir álagningaseðlar í bréfpósti.
Gjaldskrá og reglur um niðurfellingu fasteignagjalda fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er að finna á heimasíðu Vesturbyggðar, ásamt reglum um styrkveitingu til félagasamtaka.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á innheimta@vesturbyggd.is eða í síma 450 2300. Meðal annars er hægt að:
- Óska eftir að fá senda álagningaseðil fyrir fasteignagjöldum þar sem hann verður ekki sendur í bréfpósti
- Senda inn erindi vegna fasteignagjalda
- Senda inn kærur vegna fasteignagjalda
- Senda inn umsókn um styrkveitingu til félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum
- Senda inn umsókn um lækkun fasteignaskatts vegna fráfalls maka á árinu 2024
Kæru- og umsóknafrestur er til 15. mars 2025.
Fasteignagjöld sem eru yfir kr. 45.000 greiðast með 11 jöfnum greiðslum á mánaðar fresti, fyrsti gjalddagi er 1. febrúar. Fasteignagjöld kr. 45.000 og lægri eru innheimt með einum gjalddaga 1. febrúar.
Fasteignagjöld verða innheimt í netbönkum.
Þeir sem þess óska geta lagt inn gjöld í einu lagi á bankareikning
0153-26-001800 kt. 510694-2369. Skýring: Fastanúmer eignar.
Vinsamlegast sendið kvittun á innheimta@vesturbyggd.is og kröfur verða felldar niður í kjölfarið.