Ályktun um framkvæmdir við jarðgöng
Á Fjórðungsþingi Vestfirðinga var ályktun um framkvæmdir við jarðgöng á Vestfjörðum samþykkt. Þingið fagnaði því að Álftafjarðargöng og göng undir Mikladal og Hálfdán hefðu verið sett í forgang í samgönguáætlun og skoraði jafnframt á ríkisstjórn og Alþingi að hraða undirbúningi verkefnanna og tryggja nauðsynlega fjármögnun til framkvæmda.
71. Fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti var haldið á Patreksfirði 27. og 28. október 2026. Í ályktuninni var lögð áhersla á að samþykktri forgangsröðun í samgönguáætlun 2026–2040 yrði fylgt eftir með skýrri, tímasettri og fjármagnaðri framkvæmdaáætlun fyrir bæði jarðgangaverkefnin. Jafnframt var lögð áhersla á að framkvæmdir við bæði jarðgangaverkefnin hæfust eigi síðar en árið 2030.
Í ályktuninni er mikilvægi öruggra heilsárssamgangna fyrir búsetu, atvinnulíf og aðgengi að þjónustu á Vestfjörðum undirstrikað. Göng undir Mikladal og Hálfdán munu bæta samgöngur milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals. Þá munu Álftafjarðargöng leysa samgönguvanda um Súðavíkurhlíð.
Ályktunin í heild sinni er neðst í fréttinni.