Alzheimersamtökin með fræðslu um heilabilun
Alzheimersamtökin bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur í Félagsheimilinu á Patreksfirði þriðjudaginn 9. júní kl. 16:30. Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin.
Á fræðslufundunum verður starf Alzheimersamtakanna kynnt og fjallað um þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og stuðnings við aðstandendur.
Meiri þekking – minni fordómar
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á heilabilun og áhrifum hennar á líf einstaklinga og aðstandenda þeirra.
Það skiptir sköpum að tala opinskátt um heilabilun. Að segja frá greiningu getur dregið úr kvíða og einangrun, bæði fyrir þann sem greinist og aðstandendur. Með aukinni umræðu getum við einnig unnið gegn fordómum og stuðlað að skilningsríkara samfélagi.
Fræðsluna leiða Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi hjá samtökunum.
Fundargestir fá aukinn skilning á breyttum aðstæðum, hagnýtar hugmyndir að bættum samskiptum og tækifæri til að fræðast og ræða málefni sem snerta marga. Fræðslan er ætluð einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öllum öðrum sem vilja auka þekkingu sína.
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna thelma@alzheimer.is sími 86 86 056