Anna Vilborg Rúnarsdóttir ráðin sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Vesturbyggð hefur ráðið Önnu Vilborgu Rúnarsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Anna Vilborg er með B.Ed í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og viðbótardiplómu í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Að auki hefur hún lokið MLM meistaragráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun og verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Anna Vilborg hefur haldbæra þekkingu á málaflokkum fjölskyldusviðs en hún starfaði um árabil sem kennari, deildarstjóri og náms- og starfsráðgjafi innan grunn- og framhaldsskóla. Einnig hefur hún reynslu sem bæjarfulltrúi í Vesturbyggð á árunum 2021-2023, auk þess sem hún hefur setið í ýmsum nefndum og ráðum á vegum bæjarfélagsins, til að mynda innan tómstunda- og íþróttahreyfingarinnar.
Anna Vilborg býr yfir víðtækri reynslu af rekstri, stjórnun og mannauðsmálum. Hún hefur síðastliðin ár haldið utan um rekstur Vegamóta ehf. og borið ábyrgð á daglegum rekstri, starfsmannamálum og stefnumótun. Þar áður starfaði hún sem mannauðsstjóri hjá Arnarlaxi þar sem hún vann að fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála.
Sem sviðsstjóri fjölskyldusviðs mun Anna Vilborg bera ábyrgð á starfsemi sviðsins og leiða málaflokka sem snúa að félagsþjónustu, fræðslumálum, íþrótta- og tómstundamálum. Í starfinu felst jafnframt að stuðla að heildstæðri þjónustu við börn, fjölskyldur og íbúa Vesturbyggðar í góðu samstarfi við stjórnendur, starfsfólk og hagaðila.
Við bjóðum Önnu Vilborgu velkomna til starfa en hún mun hefja störf í júlí næstkomandi.
