Árshátíðir grunnskólanna 2026
Árshátíðir Bíldudalsskóla, Patreksskóla og Tálknafjarðarskóla verða haldnar fimmtudaginn 26. apríl. Þar sýna nemendur afrakstur sköpunarlotu skólanna.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. fyrir fullorðna en frítt er fyrir leik- og grunnskólabörn. Foreldrafélög skólanna bjóða upp á veitingar að sýningum loknum.
Nánari tíma- og staðsetningar:
- Tálknafjörður: kl. 17:00 í íþróttahúsinu, Sveinseyri.
- Patreksfjörður: kl. 16:15 í félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107. Leikfélag Patreksskóla sýnir svo Mamma Mia kl. 20:00.
- Bíldudalur: kl. 16:00 í félagsheimilinu Baldurshaga, Tjarnarbraut 4.
Öll hjartanlega velkomin.