Ársreikningur Vesturbyggðar afgreiddur í bæjarstjórn
Bæjarstjórn Vesturbyggðar tók ársreikning sveitarfélagsins fyrir í seinni umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær, miðvikudaginn 4. Júní.
Var þetta fyrsti ársreikningur sameinað sveitarfélags en sameining Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar gekk í gegn 19. maí 2024. Til samanburðar í ársreikningi eru samanlagðar tölur Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps eins og þær stóðu í ársreikningum sveitarfélaganna fyrir sameiningu.
Skrifað: 5. júní 2025
Heildarfjárfesting ársins nam 464,5 milljónum króna og voru stærstu fjárfestingarnar í endurgerð gatna, grunn- og leikskólum og í hafnarsjóði.
Heildar tekjur námu 2,96 milljörðum króna og eru framlög vegna sameiningar þar á meðal.
Skuldaviðmiðið í árslok 2024 er 97% en gert er ráð fyrir í reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga að skuldaviðmiðið fari ekki yfir150%.
Lántökur á árinu voru 250 milljónir en gert hafði verið ráð fyrir lántöku uppá 340 milljónir. Afborganir langtímalána námu 251 milljónum.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er 87 milljón króna hagnaður sem er aðeins yfir áætlun sem gerði ráð fyrir 75 milljón króna hagnaði.