Hoppa yfir valmynd

Atkvæða­greiðsla utan kjör­fundar vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst

Atkvæða­greiðsla utan kjör­fundar vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við Evrópu­sam­bandið er hafin.


Skrifað: 29. júlí 2026

Hjá sýslumanninum á Vestfjörðum má greiða atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins alla virka daga sem hér segir.

  • Ísafjörður, Hafnarstræti 1, kl. 9:00-15:00 en föstudaga kl. 09:00-14:00.
  • Hólmavík, Hafnarbraut 25, 2. hæð, kl. 09:00-13:00 en föstudaga kl. 9:00-12:00.
  • Patreksfjörður, Aðalstræti 92, kl. 09:00-12:00 og 13:00-15:00 en föstudaga kl. 09:00-12:00.

Þegar nær dregur kjördegi verða settar inn á svæði sýslumanna á vefnum Island.is, upplýsingar um fleiri kjörstaði, um atkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum og dvalarheimilum í umdæminu og eftir atvikum lengdan tíma sem opið verður á skrifstofum embættisins.

  • Kjósandi skal gæta að hvar hann er á kjörskrá, en nálgast má upplýsingar um það á vef Þjóðskrár.
  • Kjósandi skal, áður en hann greiðir atkvæði utan kjörfundar, gera starfsmanni kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa vegabréfi, ökuskírteini, nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra.
  • Öllum sem eru skráðir á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er óháð búsetu eða lögheimili.
  • Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, þarf að hafa borist hlutaðeigandi skrifstofu sýslumanns á þar til gerðu eyðublaði eigi síðar en kl. 16:00 fjórum dögum fyrir kjördag eða þriðjudaginn 25. ágúst.