Bætt þjónusta við íbúa og fyrirtæki Í Vesturbyggð
Eitt af markmiðum okkar er að gera samskipti við sveitarfélagið einfaldari, aðgengilegri og skilvirkari.
Undanfarið höfum við stigið nokkur lítil en mikilvæg skref í átt að bættri þjónustu við íbúa og fyrirtæki.
Skrifað: 1. júlí 2026
Tekin hefur verið upp reglulegur viðtalstími bæjarstjóra þar sem íbúar geta komið á framfæri hugmyndum, áhyggjum eða spurningum með einföldum hætti. Um viðbótarþjónustu er að ræða frá því sem verið hefur. Áfram verður hægt að hafa samband á skrifstofu Vesturbyggðar og óska eftir fundi við bæjarstjóra utan auglýsts viðtalstíma ef sá tími hentar ekki.
Þá hefur nýr ábendingarhnappur verið tekinn í notkun á heimasíðunni. Með honum geta íbúar á einfaldan hátt komið á framfæri ábendingum um það sem betur má fara eða sent inn fyrirspurnir þegar þörf krefur. Þannig fáum við mikilvægar upplýsingar beint frá þeim sem þekkja nærumhverfið best og getum brugðist hraðar við.
Við höfum einnig opnað fyrir þann möguleika að senda rafræna reikninga í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins. Fyrir fyrirtæki og verktaka þýðir það ódýrara, og þægilegra ferli sem sparar tíma og auðveldar samskipti.
Þessar breytingar eru kannski ekki stórar hver fyrir sig, en saman stuðla þær að nútímalegri og betri þjónustu. Markmiðið er að auðvelda fólki samskipti við sveitarfélagið, stytta leiðina að upplýsingum og tryggja að erindi berist á réttan stað.
