Baldur aftur á áætlun á morgun
Vegna viðgerða á ekjubrú Baldurs í Stykkishólmi féllu siglingar niður í dag, þriðjudaginn 10. febrúar. Viðgerðum er nú lokið og gert er ráð fyrir að siglt verði samkvæmt áætlun á morgun.
Nánari upplýsingar um Baldur má finna á hlekknum hér fyrir neðan og á heimasíðu Ferjuleiða.