Bergdís verkefnastjóri á Tálknafirði
Vestfjarðastofa auglýsti starf verkefnastjóra verkefnisins Brothættra byggða á Tálknafirði laust til umsóknar í maí síðastliðnum. Alls sóttu 14 um starfið og hefur Bergdís Þrastardóttir verið ráðin verkefnastjóri á Tálknafirði. Bergdís hefur störf þann 1. ágúst.
Bergdís hefur doktorspróf í íslenskum miðaldabókmenntum og masterspróf í Norrænum fræðum. Bergdís hefur fjölbreytta reynslu og þekkingu á þróunarvinnu bæði sem frumkvöðull og starfsmaður fyrirtækja og stofnana. Hún hefur sinnt verkefnisstjórn, viðburðastjórnun, viðburðahönnun og uppbyggingu m.a. sjálfboðaliðasamtaka. Hún hefur komið að uppbyggingu og stefnumótun auk þess að hafa haft mannaforráð. Hún hefur reynslu af því að móta verkefni, skilgreina markmið og byggja upp verkferla til breytinga.
