Bíldudalsskóli formlega vígður
Glænýr leik- og grunnskóli var formlega vígður við hátíðlega athöfn á Bíldudal í dag, fimmtudaginn 14. maí, að viðstöddum nemendum, starfsfólki, íbúum og öðrum gestum.
Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla, og Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri, fluttu ávörp og nemendur tóku þátt í dagskránni með tónlistarflutningi. Skólinn var svo vígður með táknrænum hætti þegar nemendur skólans héldu á borða sem Svandís Hulda Markúsardóttir, nemandi við skólann, klippti á og uppskar mikið lófatak. Að lokum var sameinast í söng þar sem lagið Hafið eða fjöllin var sungið undir stjórn Gísla Ægis Ágústssonar, bæjarlistamanns sveitarfélagsins. Lagavalið þótti vel við hæfi enda blasir við einstakt útsýni frá skólanum yfir Bíldudalsvog og fjallið Byltu.
Í ávarpi sínu sagði Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri:
Það er stór stund fyrir lítið samfélag að vígja nýjan skóla. Svona framkvæmdir segja mikið um það hvernig samfélag við viljum vera. Þær segja að við trúum á framtíðina, að við trúum á börnin okkar og að við séum tilbúin að fjárfesta í þeim.

Aðdragandi verkefnisins hófst árið 2022 þegar grunur vaknaði um myglu í eldri skólabyggingu. Í kjölfar mælinga, sem bentu til umfangsmikils vanda, var notkun húsnæðisins hætt og skólastarf flutt tímabundið í önnur húsnæði á Bíldudal. Samfélagið tók höndum saman til að brúa bilið á meðan unnið var að framtíðarlausn fyrir skólahaldið, meðal annars urðu safnaðarheimilið og Skrímslasetrið að skólastofum.
Árið 2023 fóru ráðgjafar frá GINGa teiknistofu og Arkibygg arkitektum yfir stöðuna, skoðuðu húsnæðið og mátu möguleika á endurbótum eða nýbyggingu. Niðurstaðan varð sú að byggja nýjan sameinaðan leik- og grunnskóla við íþróttahúsið þar sem nálægð við íþróttaaðstöðu og möguleikar á samnýtingu þóttu skapa heildstætt skólasvæði til framtíðar.
Verkefnið þróaðist hratt í kjölfarið. Forhönnun hófst árið 2023 og árið 2024 var farið í útboð, verkhönnun og undirbúning framkvæmda. Framkvæmdir hófust síðan af fullum krafti síðla árs 2024.
Skólinn var hannaður af Arkibygg arkitektum og GINGA teiknistofu og annaðist Arctic North framkvæmdir við bygginguna. Við hönnun skólans var lögð áhersla á að skapa hlýlegt, bjart og aðgengilegt umhverfi þar sem bæði leik- og grunnskólabörn geta notið sín. Á næstu mánuðum verður unnið að uppbyggingu nýrrar skólalóðar við skólann.

Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla, sagði í ávarpi sínu:
Eftir að hafa þurft að flytja starfsemi skólans og vinna um tíma við krefjandi aðstæður er sérstaklega ánægjulegt að standa hér í dag og taka þessa glæsilegu nýju aðstöðu í notkun. En húsnæði og aðstaða eru ekki það sem skilgreinir skólahald, það eru nemendurnir og fólkið sem starfar innan veggja skólans.
Skólinn hlaut tvær veglegar gjafir við tilefnið, annars vegar Soundbox frá Arnarlax og hins vegar 150.000 kr. peningagjöf frá slysavarnadeildinni Gyðu.
Fleiri myndir má sjá hér að neðan, flett er áfram með því að ýta á örina.





