Hoppa yfir valmynd

Bjark­ar­hlíð á Patreks­firði

Bjark­ar­hlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, verður með einstak­lings­ráð­gjöf á Patreks­firði mánað­ar­lega næsta árið.


Skrifað: 30. maí 2025

Bjarkarhlíð veitir ráðgjöf og upplýsingar fyrir 18 ára og eldri þeim að kostnaðarlausu. Hægt er að bóka tíma með því að skanna kóðann hér að neðan.


Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmið er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Bjarkarhlíð býður áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri.

Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, Dómsmálaráðuneytis, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta,  Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.