Breytingar á ferðum Baldurs vegna veðurs
Ferjuleiðir stefna á að sigla fyrri ferð Baldurs í dag, fimmtudag, en hafa aflýst seinni ferð dagsins.
Staðan verður metin þegar nær dregur varðandi föstudaginn en útlitið er ekki gott miðað við veður- og ölduspá.
Frekari uppfærslur verða birtar á Facebooksíðu Ferjuleiða.