Brúarkvöld í Birkimel — Rannsókn á heimabyggð
Miðvikudaginn 18. nóvember 2026, kl. 19:30 – 21:30 kynnir Elva Björg Einarsdóttir rannsókn sína um Vesturbyggð, í Birkimel á Barðaströnd.
Áherslan í rannsókninni er á að skoða Vesturbyggð út frá hversdagslegum hlutum og því smáa og draga fram tengsl sem við tökum alla jafna sem sjálfsögðum hlut. Elva Björg skoðaði sérstaklega tengsl fólks og náttúru, aðalmálin í sveitarfélaginu – veginn, hvernig staðurinn hefur breyst frá því að gömlu alfarleiðirnar voru í notkun og hvernig heimamenn og ferðamenn mætast í mismunandi aðstæðum.
Niðurstöður sýna annan stað en ef til vill blasir við, við fyrstu sýn. Stað þar sem þjóðsögur nýtast sem greiningartæki, söguleg samverkan vefur ofan af staðarmyndun gömlu alfaraleiðanna, valdið býr í veginum og heimamenn bjóða – eða ekki – heim að dyrum.
Elva Björg er er doktor í ferðamálafræði og rannsakandi við Háskóla Íslands og vinnur þar að verkefninu Ecological Pilgrimage og Brúarkvöldið er liður í því verkefni. Elva Björg er frá Seftjörn á Barðaströnd og höfundur bókarinnar Barðastrandarhreppur – göngubók sem hún vann að ásamt sveitungunum.
Brúarkvöld eru að þingeyskri fyrirmynd þar sem fræðafólk sem rannsakar í héraði og heimamenn deila þekkingu sinni yfir heitum sopa og sætindum. Verið öll velkomin.