Byggðabragur — Kynning á niðurstöðum
Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst kynnir helstu niðurstöður úr byggðarbragsrannsókn í fjarfundi þriðjudaginn 9. júní kl. 15:30.
Rannsóknin er hluti af verkefninu Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags sem Fjórðungssamband Vestfirðinga hlaut 9,4 milljóna styrk fyrir úr byggðaáætlun. Hún fól í sér viðtöl, netkönnun meðal íbúa og söfnun annarra gagna. Markmiðið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á byggðabrag, sjálfsmynd íbúa og ímynd hins nýja sveitarfélags og skapa grunn að skýrri framtíðarsýn.
Kynningin verður tekin upp svo hægt verður að horfa á hana eftir á. Helstu niðurstöður verða kynntar á fjarfundinum en einnig verður birt skýrsla með nánari niðurstöðum á næstu vikum. Niðurstöðum hennar verða gerð góð skil á heimasíðu sveitarfélagsins.
Kynning er um hálftíma og svo gefst tími fyrir umræður eða fyrirspurnir. Fundurinn er á Teams, sjá hlekk með fréttinni. Öll eru hjartanlega velkomin að fylgjast með.