Byggðabragur — Kynning á niðurstöðum
Uppfært: Kynning Rannsóknarseturs í Byggða- og sveitarstjórnarmálum á helstu niðurstöðum úr byggðarbragsrannsókn, sem átti að vera mánudaginn 11. maí kl. 16:15, er frestað um óákveðinn tíma vegna veikinda.
Rannsóknin er hluti af verkefninu Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags sem Fjórðungssamband Vestfirðinga hlaut 9,4 milljóna styrk fyrir úr byggðaáætlun. Hún fól í sér viðtöl, netkönnun meðal íbúa og söfnun annarra gagna. Markmiðið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á byggðabrag, sjálfsmynd íbúa og ímynd hins nýja sveitarfélags og skapa grunn að skýrri framtíðarsýn.
Kynning er um hálftíma og svo gefst tími fyrir umræður eða fyrirspurnir. Fundurinn er á Teams og er slóðin neðst í fréttinni.