Dagbók bæjarstjóra 23.september – 21.október
Frá síðasta fundi bæjarstjórnar hefur verið töluverður erill og mörg mikilvæg mál verið til umfjöllunar. Tímabilið hefur meðal annars einkennst af samtali við ríkið og önnur sveitarfélög, vinnu að hagsmunamálum Vesturbyggðar, undirbúningi fjárhagsáætlunar og áframhaldandi vinnu að fjölbreyttum verkefnum innan sveitarfélagsins.
Fjármál sveitarfélaga og samskipti við ríkið
Á tímabilinu tók ég þátt í Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Slíkir fundir eru mikilvægur vettvangur fyrir sveitarfélög til að ræða sameiginleg hagsmunamál og þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir.
Samhliða þessu hafa samskipti við þingmenn og stjórnvöld verið talsverð. Á þingmannafundi gafst meðal annars tækifæri til að koma helstu áherslumálum Vesturbyggðar og Vestfjarða á framfæri. Miklu skiptir að sjónarmið sveitarfélaga á landsbyggðinni heyrist við ákvarðanatöku ríkisins og við forgangsröðun og fjármögnun mikilvægra verkefna.
Í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun hafa bæjarstjóri og bæjarstjórn, ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins, heimsótt ýmsar stofnanir sveitarfélagsins. Heimsóknirnar eru liður í undirbúningi fjárhagsáætlunar og gefa jafnframt tækifæri til samtals um starfsemina, helstu verkefni og áherslur hverrar stofnunar.
Fulltrúar allra heimastjórna hafa einnig fundað með bæjarráði, þar sem farið var yfir helstu áherslumál hvers svæðis vegna fjárhagsáætlunarvinnunnar.



Eldisgjald
Málefni eldisgjalds hafa verið fyrirferðarmikil á tímabilinu og unnið hefur verið áfram að málinu af hálfu sveitarfélagsins.
Þetta er mikilvægt hagsmunamál fyrir Vesturbyggð. Áfram verður fylgt þétt eftir að tekjur sem verða til vegna fiskeldis og þess álags sem starfseminni fylgir skili sér með sanngjörnum hætti til þeirra samfélaga þar sem starfsemin fer fram.
Samstarf sveitarfélaga
Á tímabilinu fóru fram aðalfundir samtaka sem Vesturbyggð á aðild að. Þann 7. október voru haldnir ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum og aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga í Reykjavík.
Ég var endurkjörin í stjórnir beggja samtaka, en hef setið í þeim undanfarin tvö ár. Þá fór aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga einnig fram sama dag.




Náttúrustofa Vestfjarða og samstarf á Vestfjörðum
Ársfundur Náttúrustofu Vestfjarða fór fram í Bolungarvík 30. september og tók ég þátt í honum í gegnum fjarfundabúnað.
Starf Náttúrustofunnar er mikilvægur hluti af þekkingar- og rannsóknarstarfi á Vestfjörðum. Mikilvægt er að sveitarfélögin á svæðinu séu virk í samstarfinu og styðji við áframhaldandi uppbyggingu þekkingar á náttúru og umhverfi Vestfjarða.
Nýja björgunarskipið Unnur
Sunnudaginn 27. september var nýja björgunarskipinu Unni tekið fagnandi á móti þegar það kom til heimahafnar á Patreksfirði. Fjölmenni var við Patrekshöfn þegar skipið lagðist að bryggju.
Unnur leysir Vörð II af hólmi og er nefnd eftir Slysavarnadeildinni Unni á Patreksfirði. Einstaklingar, félagasamtök, sveitarfélagið og fyrirtæki lögðu verkefninu lið og sýnir það vel þann mikla samhug sem hefur einkennt verkefnið frá upphafi.
Koma skipsins er stór áfangi fyrir samfélagið og mikilvægt framfaraskref í öryggis- og björgunarmálum á sunnanverðum Vestfjörðum. Nýtt og öflugt björgunarskip skiptir miklu máli á svæði þar sem sjósókn er mikil og vegalengdir langar. Móttakan var bæði hátíðleg stund og góð áminning um mikilvægi sjálfboðaliðastarfs og björgunarstarfs í samfélaginu.


Byggðastofnun og byggðaþróunarverkefni
Ég átti stuttan fund með stjórn Byggðastofnunar þegar stjórnin hélt fund sinn á Patreksfirði. Þar gafst gott tækifæri til að fara yfir þau verkefni sem Vesturbyggð vinnur að með stuðningi og styrkjum frá Byggðastofnun. Þar má meðal annars nefna verkefnið Brothættar byggðir í Tálknafirði og Byggðabrag.
Samstarfið við Byggðastofnun er mikilvægt fyrir framgang þessara verkefna og fundurinn var gott tækifæri til að ræða stöðu þeirra og þá vinnu sem fram undan er ásamt því að fara yfir öll þau fjölmörgu tækifæri sem eru á svæðinu.
Byggðabragur
Verkefnið Byggðabragur hefur verið áfram í vinnslu á tímabilinu. Verkefnið byggir á ítarlegri íbúakönnun og er markmiðið að nýta niðurstöður hennar til áframhaldandi byggða- og samfélagsþróunar.
Mikilvægt er að niðurstöðum íbúakönnunarinnar verði ekki stungið ofan í skúffu heldur verði þær nýttar sem grundvöllur markvissrar vinnu og forgangsröðunar verkefna. Nú er unnið að því að móta næstu skref og hvernig best verði haldið áfram með verkefnið.




Viðvera í byggðakjörnum
Ég legg áherslu á að vera reglulega með viðveru í byggðakjörnum sveitarfélagsins og eiga þar samtal við íbúa, fyrirtæki og starfsfólk. Það hefur ekki alltaf gengið eftir og myndi ég gjarnan vilja sinna þeim hluta starfsins betur. Ég var með viðveru á Bíldudal 21. október og verð með viðveru á Tálknafirði 4. nóvember.
Viðvera í byggðakjörnunum er auglýst jafnóðum og stefni ég að því að fjölga tækifærum til samtals. Regluleg viðvera er mikilvæg, ekki síst í jafn víðfeðmu sveitarfélagi og Vesturbyggð. Markmiðið er að auðvelda samtal við íbúa og tryggja að sjónarmið af öllu svæðinu komist með beinum hætti inn í stjórnsýslu og ákvarðanatöku sveitarfélagsins.
Heimsókn Þjóðskjalasafns
Fulltrúar Þjóðskjalasafns heimsóttu Vesturbyggð 5. október. Í heimsókninni var farið yfir málefni sem tengjast skjalavörslu og skjalahaldi sveitarfélagsins.
Heimsóknin var kærkomið tækifæri til samtals og leiðbeiningar um þennan mikilvæga þátt stjórnsýslunnar.
Hjúkrunarheimilið á Patreksfirði
Málefni hjúkrunarheimilisins á Patreksfirði hafa einnig verið til umræðu. Á tímabilinu var fundað með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og farið yfir stöðu verkefnisins og næstu skref.
Hér er um mikilvægt þjónustu- og framtíðarmál fyrir sunnanverða Vestfirði að ræða. Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi og mikilvægt er að tryggja því áframhaldandi framgang, þótt sveitarfélagið eigi ekki lengur beina aðild að fjármögnun þess. Sveitarfélagið mun því áfram fylgja málinu þétt eftir í samtali við heilbrigðisyfirvöld.
Að lokum
Tímabilið hefur verið viðburðaríkt og mörg þeirra verkefna sem nú eru til vinnslu snúa að langtímahagsmunum Vesturbyggðar. Þar má sérstaklega nefna fjármál og tekjustofna sveitarfélaga, stöðu fiskeldissveitarfélaga, samfélagsuppbyggingu, heilbrigðisþjónustu og áframhaldandi samtal við íbúa og stjórnvöld.
Fjárhagsáætlunarvinna fyrir næsta ár er komin á fullt og verður hún eitt stærsta verkefni stjórnsýslunnar og bæjarstjórnar á næstu vikum.
