Deiliskipulag – Brjánslækur 1
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á aðalskipulagi
Breyting er gerð á sveitarfélagsuppdrætti þar sem verslunar- og þjónustusvæði VÞ8 við Brjánslæk er stækkað úr 6,7 ha í 8,3 ha og byggingarmagn er aukið úr 500 m2 í 1000 m2.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
Deiliskipulag Brjánslækur 1
Innan svæðisins verði heimilt að reisa 11 hús til gistingar, hvert um sig á bilinu 40-100 m², auk eins þjónustuhúss allt að 150 m² að stærð. Hámarksbyggingarmagn innan lóðar er samtals 1.000 m².
Tillögurnar liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 24. ágúst til 5. október 2026 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, sem og undir málsnúmerum 429/2026 og 206/2026 á skipulagsgátt HMS.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 5. október 2026.
Skila skal athugasemdum undir viðeigandi málsnúmerum í skipulagsgátt HMS.
