Deiliskipulagstillaga frístundabyggðar í Vesturbotni
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
Deiliskipulag frístundabyggðar í Vesturbotni, Vesturbyggð.
Deiliskipulagið nær yfir hluta jarðarinnar Vesturbotn í Vesturbyggð. Deiliskipulagið er 131 ha að stærð og nær yfir 24 frístundalóðir og golfvöll.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 12. ágúst til 24. september 2023 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 21. september 2023.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar.