Dýralæknir á Patreksfirði
Helga Sigríður dýralæknir verður á Patreksfirði laugardaginn 17. október í Sigurðarbúð, (húsi Björgunarsveitarinnar) með árlega hreinsun og bólusetningu.
Skrifað: 9. október 2026
Hundaeigendur greiða sjálfir fyrir bólusetningu en hreinsunin er innifalin í hundaleyfisgjaldi.
Dýraeigendur eru beðnir um að panta tíma, einnig þó bara sé verið að koma í ormahreinsun.
Ef þörf er á annarri og meiri aðstoð eru eigendur vinsamlega beðnir um að setja sig í samband við Helgu Sigríði áður en hún kemur á svæðið í tölvupósti dyralaeknastofahelgu@gmail.com eða í síma 896-5205
Hægt verður að skrá hunda á staðnum.
