Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Dýralæknir á Patreksfirði
Helga Sigríður dýralæknir verður á Patreksfirði mánudaginn 29. ágúst, frá kl. 13:00 til 17:00 í Sigurðarbúð (húsi Björgunarsveitarinnar) með árlega hreinsun og bólusetningu.
Hundaeigendur greiða sjálfir fyrir bólusetningu en hreinsunin er innifalin í hundaleyfisgjaldi.
Ef dýraeigendur þurfa á annarri aðstoð dýralæknis að halda, þá eru þeir vinsamlega beðnir um að setja sig í samband við Helgu Sigríði áður en hún kemur á svæðið með tölvupósti dyralaeknastofahelgu@gmail.com eða í síma 896 5205
Hægt verður að skrá hunda á staðnum.