Hoppa yfir valmynd

Efnis­flutn­ingar um Patreks­höfn

Sunnu­daginn 25. janúar mun flutn­inga­skipið Nord­fjord koma til hafnar á Patreks­firði. Skipið flytur um 6.000 tonn af steypumöl, sem ætluð er til brúar­gerðar í Gufu­dals­sveit.


Skrifað: 23. janúar 2026

Afferming hefst snemma morguns mánudaginn 26. janúar. Efnið verður flutt frá skipi og geymt tímabundið á fyllingu utan við Oddann. Á meðan á affermingu stendur má búast við lokunum eða takmörkunum á aðgengi að hafnarsvæðinu. Stefnt er að því að ljúka affermingu kvöldið sama dag.

Íbúar eru beðnir um að sýna aðgát og þolinmæði meðan á affermingu stendur.