Hoppa yfir valmynd

Einar Skarp er bæjarlista­maður 2026

Einar V. Vatneyr Skarp­héð­insson, hagleiks­maður í trésmíðum, er bæjarlista­maður Vest­ur­byggðar 2026. Verð­launin voru veitt í sjötta sinn á hátíð­ar­höldum á Bíldudal þann 17. júní.


Skrifað: 18. júní 2026

Einar er fæddur og uppalinn á Patreksfirði og hefur búið þar nær alla sína síð. Hann er húsasmíðameistari og kennari að mennt og starfaði sem smíðakennari á Patreksfirði í tvo áratugi. Samhliða starfi hefur hann ávallt sinnt handverki og listköpum af mikilli natni, einkum í tré.

Einar hefur skapað sér einstaka sérstöðu með verkum sínum og er þekktur fyrir hagleik og vandaða smíði. Hann smíðir bæði eftir eigin hönnun og annarra. Meðal þeirra muna sem margir þekkja eru vinsælu viðarslaufurnar hans sem hann hannaði frá grunni og hafa ratað til kaupenda alls staðar að úr heiminum. Þá hefur hann einnig unnið fjölbreytt verk á borð við skurðarbretti, penna, kertastjaka, merkingar og ýmsa aðra nytjahluti þar sem handverk og list mætast.

Mörgum er einnig kunnugt um Einarinn, verðlaunagrip heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborgar, sem Einar hannaði fyrir fyrstu hátíðina fyrir tuttugu árum. Frá upphafi hefur gripurinn verið afhentur áhorfendaverðlaunahafa hátíðarinnar og er orðinn órjúfanlegur hluti af sögu hennar.

Einar hefur ekki aðeins skapað list heldur einnig lagt sitt af mörkum til samfélagsins með því að halda verkstæði sínu opnu fyrir gestum og gangandi. Hann hefur tekið á móti ferðamönnum, tekið þátt í mörkuðum og kynnt handverk sitt víða. Hann hefur verið mikilvægur þátttakandi í menningar- og handverksstarfi í sveitarfélaginu í árabil.

Auglýst var eftir tilnefningum á heimasíðu Vesturbyggðar þann 30. mars. Líkt og áður var skipuð sérstök valnefnd sem valdi bæjarlistamann ársins. Í nefndinni sátu Skúli Gautason, Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, Ólafur Helgi Kolbeinsson, Kristinn H. Marinósson og Birta Ósmann Þórhallsdóttir. Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Einar hafi starfað lengi og af alúð að list sinni, skapað sér sérstakan sess meðal handverksfólks og auðgað samfélagið með verkum sínum og þátttöku. Hann sé því vel að nafnbótinni kominn.

Við óskum Einari V. Vatneyr Skarphéðinssyni hjartanlega til hamingju með nafnbótina.

 


Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335