Hoppa yfir valmynd

Ekki opið hús í Vatn­eyr­arbúð

Þau mistök urðu við útgáfu Sjómannadags­blaðsins að birt var auglýsing frá Vest­ur­byggð þar sem boðið er á opið hús í Vatn­eyr­arbúð á sjómannadaginn. Auglýs­ingin er frá árinu 2024 og við verðum því að hryggja gesti hátíð­ar­innar með því að það verður ekki opið hús í Vatn­eyr­arbúð um helgina.


Skrifað: 30. maí 2025

Íbúum er þó að sjálfsögðu frjálst að dást að húsinu utan frá. Þá má til dæmis bera nýjan lit hússins augum, sem verið er að mála gult um þessar mundir.