Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Eldvarn­ar­eft­irlit að störfum

Tálkna­fjarð­ar­hreppur og Vest­ur­byggð hafa gert samning við Bruna­varnir Suður­nesja um sinna eldvarn­ar­eft­ir­liti á þjón­ustu­svæði sveit­ar­fé­lag­anna til ársloka 2024


Skrifað: 15. mars 2024

Með samningnum er áætlað að reglubundnu eftirliti sé haldið uppi í samræmi við lög um brunavarnir.  

Á næstunni mun eldvarnareftirlitið verða hjá okkur að sinna eldvarnareftirlitinu hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu í samræmi við brunavarnaráætlun sveitarfélaganna. 

Við biðjum ykkur því að láta ykkur ekki bregða ef þið sjáið aðila merktan Brunavörnum Suðurnesja, þau eru ekki að villast.