Félagsmiðstöðvarnar Vest-End og Dímon auglýsa eftir starfsfólki
Félagsmiðstöðin Vest–End á Patreksfirði auglýsir eftir umsjónarmanni og starfsmanni og félagsmiðstöðin Dímon á Bíldudal auglýsir eftir umsjónarmanni.
Félagsmiðstöðvarnar eru opnar tvö kvöld í viku tvo tíma í senn og er starfið aðallega ætlað fyrir unglinga á unglingastigi grunnskóla. Á Patreksfirði hefur verið starfrækt ,,litla“ Vest-End sem er fyrir börn á miðstigi.
Félagsmiðstöðvarnar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og eru sameiginlegir viðurðir haldnir reglulega.
Hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Reynsla í vinnu með unglingum æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
- Áhugi fyrir að efla unglingastarf á svæðinu æskilegur
Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafa öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, og tekur hún einnig á móti umsóknum.