Hoppa yfir valmynd

Félags­starf eldra fólks á Bíldudal

Sveit­ar­fé­lagið auglýsir eftir jákvæðum og dríf­andi starfs­manni í félags­starf eldra fólks á Bíldudal. Unnið er í gefandi og skap­andi umhverfi og þarf viðkom­andi að geta unnið bæði sjálf­stætt og í samstarfi við aðra. Starfs­hlut­fall er eftir samkomu­lagi en á bilinu 20-40%.


Skrifað: 16. mars 2026

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning og framkvæmd félagsstarfs fyrir og í samstarfi við eldra fólk
  • Umsjón með kaffiveitingum í félagsstarfinu.
  • Samskipti og samstarf við aðrar stofnanir og félagasamtök sem sinna málefnum eldra fólks.
  • Önnur verkefni sem starfssviðinu tilheyra.

Hæfniskröfur

  • Samskiptahæfni og jákvæðni
  • Sjálfstæði og frumkvæði
  • Skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2026

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Arnar Sveinbjörnsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs. Umsóknir berist á vesturbyggd@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

MAS

magnusarnar@vesturbyggd.is/+354 450 2300