Ferjan Baldur
Bæjarstjórn Vesturbyggðar ræddi málefni ferjunnar Baldurs á fundi sínum 9. júní þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir við ákvörðun Vegagerðarinnar að taka ferjuna Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð.
Skrifað: 10. júní 2026
Bókun bæjarstjórnar var eftirfarandi:
Bæjarstjórn Vesturbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við ákvörðun Vegagerðarinnar að taka ferjuna Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð í þriðja sinn á skömmum tíma. Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur fullan skilning á þeirri erfiðu stöðu sem uppi er með áætlunarsiglingar Herjólfs til Vestmannaeyja og alvarlegt er að stjórnvöld hafi ekki tryggt þar fullnægjandi samgöngur.
Á sama tíma telur bæjarstjórn það með öllu óboðlegt að þessi staða sem uppi er komi niður á þjónustu í heilum landsfjórðungi sem ekki nýtur samkeppnishæfra innviða, skerðingu á fjölda flugferða og situr uppi með eilífar tafir í vegaframkvæmdum. Hefur þessi ákvörðun Vegagerðarinnar því mjög slæm áhrif á árstíðarbundna ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum sem er viðkvæm og lítið má út af bregða.
Samráð Vegagerðarinnar við sveitarfélagið eða fyrirtæki á Vestfjörðum var lítið sem ekkert og tilkynnt um að ákvörðun hafi verið tekin án þess að fram hafi farið mat á áhrifum þess.
Í samningi Vegagerðarinnar er að finna heimild til að nýta ferjuna Baldur sem varaskip í þeim tilvikum sem Herjólfur getur ekki siglt, en hvergi í samningnum kemur fram að heimilt sé að nýta Baldur sem varaskip þegar Herjólfur er einnig að sigla og Baldur aðeins nýttur í þeim tilgangi að auka flutningsgetu og þar með þjónustu við Vestmannaeyjar á kostnað Vestfirðinga og íbúa í Flatey.
Krefst Bæjarstjórn Vesturbyggðar þess að Vegagerðin falli frá ákvörðun sinni sem ekki er í samræmi við samning um ferjuna Baldur á meðan Herjólfur er að sigla á milli lands og eyja.