Fjallskilaseðill 2026
Fjallskilaseðill hefur verið samþykktur á fundi bæjarráðs sem gegnir jafnframt hlutverki fjallskilanefndar.
Lögréttir skulu vera á tímabilinu frá 7. september til 14. október 2026. Seinni leitir skulu framkvæmdar eigi síðar en 20. október 2026.
Fjallskilanefnd skorar á alla land- og fjáreigendur að láta sinn hlut ekki eftir liggja og leggja fram menn í leitir samkvæmt beiðni leitarstjóra. Vanræksla eins bitnar á öðrum og gerir allt skipulag erfitt í framkvæmd. Tilgangurinn er að reyna að létta smölunina með því að sem flestir geti unnið saman og sem skemmstur tími líði milli smölunar á samliggjandi svæðum. Árangurinn ætti að verða betri heimtur.
Fjallskilaseðill 2026 er neðst í fréttinni. Athugasemdir við seðilinn berist á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is.