Fjölskyldusvið auglýsir eftir stuðningsaðila
Fjölskyldusvið Vesturbyggðar leitast eftir því að ráða stuðningsaðila fyrir barn í sumarfrístund.
Skrifað: 20. maí 2026
Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Menntunar-og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla af starfi með fötluðum börnum kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð nauðsynleg
- Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi
Helstu verkefni
- Persónulegur stuðningur barns, aðlagaður að þörfum og áhugasviði hvers barns fyrir sig.
- Um er að ræða mánudag til fimmtudags frá kl. 8-16 og föstudaga kl. 8-14, á tímabilinu frá 9. júní -3. júlí og svo aftur 3. ágúst-19. ágúst.
- Starfið er gefandi og skemmtilegt!
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Allir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið
Nánari upplýsingar veitir Theodóra Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi fjölskyldusviðs.
