Hoppa yfir valmynd

Fjöl­skyldu­svið óskar eftir stuðn­ings­fjöl­skyldum

Fjöl­skyldu­svið leitast eftir því að ráða stuðn­ings­fjöl­skyldu/r fyrir barn/börn.


Skrifað: 29. október 2026

Stuðningsfjölskyldan býður barninu að dvelja á heimili sínu og að taka þátt í daglegu lífi þeirra. Mismunandi markmið eru með úrræðinu og fara þau eftir þörfum barns og fjölskyldu þess. Slíkri umsjá fylgir ekki krafa um sérstaka þjálfun eða hæfni umfram þá daglegu þjálfun sem felst í almennum kröfum er lúta að barnauppeldi. Stuðningsfjölskylda er ekki til þess falin að leysa margþættan eða umfangsmikinn vanda ein og sér en er mikilvægur þáttur í því að styrka foreldra og barn.

Verkefni stuðningsfjölskyldu er að

  • Annast barn í skamman tíma til að draga úr álagi á fjölskyldu barnsins
  • Veita barninu tilbreytingu og stuðnin
  • Gefa barni kost á auknum félagslegum tengslum

Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2026

Nánari upplýsingar veitir félagsráðgjafi fjölskyldusviðs