Flæðarmál — Sýningaropnun á Minjasafni Egils Ólafssonar
Sýningin Flæðarmál eftir Hafdísi Helgadóttur verður opnuð á Minjasafni Egils Ólafssonar að Hnjóti laugardaginn 20. júní kl. 14:00-16:00.
Á sýningunni má sjá geometrísk form, Kufic ferninga og hringlaga form, unnin með mismunandi sandkornum á pappír, blýantsteikningar af landakortum með texta tilvísun, ljósmyndir og lausan sand. Í heild greinist sýningin í 8 mismunandi verk, hvert um sig tengt ákveðinni sandströnd.
Hafdís er fædd á Patreksfirði en býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist af málaradeild í Myndlista- og Handíðaskóla Íslands og er með meistaragráðu frá The Academy of Fine Art (dept. of Time and Space) í Helsinki frá 1996.
Öll eru hjartanlega velkomin.
