Flugvallarstarfsmaður á Bíldudalsflugvelli
Isavia Innanlandsflugvellir óska eftir að ráða einstakling til starfa við flugvallarþjónustu á flugvellinum á Bíldudal. Starfið er í senn mjög fjölbreytt og krefjandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sjá um daglegt eftirlit, rekstur og viðhald flugvallarmannvirkja og búnaðar
- Tryggja örugga og hnökralausa starfsemi flugvallarins í samræmi við verklag og reglur
- Annast snjóruðning og hálkuvarnir til að tryggja öruggar aðstæður fyrir flugumferð allt árið um kring
- Halda uppi samskiptum við flugumferð í gegnum flugradíó (AFIS)
- Sinna björgunar- og slökkviþjónustu flugvallarins
- Bregðast við atvikum og tryggja viðeigandi viðbrögð við ófyrirséðum aðstæðum
- Taka þátt í þjálfun og viðhaldi á hæfni sem snýr að öryggi og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
- Aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af slökkvistörfum og snjóruðningi er kostur
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Gott vald á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2026
Til að geta sinnt flugvallarþjónustu þarf viðkomandi að ljúka grunnnámi í bæði flugvallarþjónustu og flugradíó. Unnið er á viku vöktum og standast þarf læknisskoðun og þrekpróf.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Nánari upplýsingar veitir Páll Janus Hilmarsson umdæmisstjóri, pall.hilmarsson@isavia.is
Vegna kröfureglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð.
Sótt er um starfið hér.