Flutningaskip kemur til Brjánslækjarhafnar
Færeyska flutningaskipið Vón Feeder er væntanlegt til Brjánslækjarhafnar sunnudagskvöldið 4. október með tæp 3.000 tonn af steinefnum sem nýta á við brúargerð í Gufudalssveit.
Efnið verður losað á athafnasvæði við höfnina þar sem það verður geymt tímabundið. Gert er ráð fyrir að allt efnið verði flutt af svæðinu og nýtt til framkvæmdarinnar fyrir miðjan desember.
Sveitarfélagið vill vekja athygli á því að aukin umferð vörubifreiða verður um Brjánslæk og nærliggjandi vegi á meðan á flutningum stendur og eru vegfarendur hvattir til að sýna aðgát
