Foreldranámskeið — Uppeldi sem virkar
Námskeiðið Uppeldi sem virkar — Færni til framtíðar er sérstaklega þróað fyrir foreldra á Íslandi og stuðst er við viðurkennd fræði og vel rannsakaðar aðferðir.
Lögð er áhersla á að kenna foreldrum leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa æskileg uppeldisskilyrði sem ýtir undir færni sem líkleg er til að nýtast barninu til frambúðar. Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. ámskeiðið byggir á Uppeldisbókinni.
Skráningu lýkur 20. september.
Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið
- Tímasetning: Fimmtudögum, 4 skipti (26. september – 17. október) kl. 16:30-18:30.
- Staður: Matsal Patreksskóla.
- Þátttökugjald: 8000 kr. einstaklingur / 12000 kr. par (námskeiðsgögn innifalin). Hvetjum foreldra til að mæta saman. Athugið að oft er hægt að sækja um endurgreiðslu frá stéttarfélagi.
- Skráning: Skráning er á theodora@vesturbyggd.is og eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram: Nafn/nöfn þátttakanda/enda, greiðandi og kennitala greiðanda.
- Leiðbeinendur: Theodóra Jóhannsdóttir félagsráðgjafi og Lilja Björk Hauksdóttir deildarstjóri stoðþjónustu Patreksskóla.
Hvernig er hægt að
- Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika?
- Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni?
- Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu?
- Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt?
- Kenna börnum æskilega hegðun?
- Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi?