Hoppa yfir valmynd

Forstöðu­maður – félags­mið­stöðin Dímon

Við leitum að öflugum, jákvæðum og ábyrgum einstak­lingi sem hefur áhuga á starfi með ungmennum og vill taka þátt í að skapa fjöl­breytt, öruggt og skemmti­legt félags­starf.


Skrifað: 18. ágúst 2026

Starfið felur m.a. í sér skipulagningu og framkvæmd starfs félagsmiðstöðvarinnar í samstarfi við tómstundafulltrúa, með áherslu á jákvætt og uppbyggilegt umhverfi.

Félagsmiðstöðin er að jafnaði opin tvö kvöld í viku, tvo tíma í senn.

 

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er æskileg.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði.
  • Áhugi fyrir að efla unglingastarf á svæðinu skilyrði.
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir Maggý Hjördís Keransdóttir, tómstundafulltrúi, og tekur hún einnig á móti umsóknum.

Tómstundafulltrúi

MHK

maggyh@vesturbyggd.is/+354 450 2300