Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Forstöðu­maður Vest-End á Patreks­firði

Vest­ur­byggð auglýsir eftir forstöðu­manni í félags­mið­stöðina Vest-End á Patreks­firði. Um er að ræða alla umsjón með félags­mið­stöð­inni veturinn 2021-2022 hið minnsta.


Skrifað: 20. september 2021

Starfið felst í skipulagningu á innra starfi Vest-End sem og þrifum og þess háttar. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10.bekk en fá 7.bekkingar að mæta einu sinni í viku á sérstaklega auglýsta viðburði.

Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir einu sinni í mánuði.

  • Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Fyrra starf og/eða nám nýtist í starfi er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2021

Nánari upplýsingar veita Guðný Lilja Pálsdóttir, íþrótta og tómstundafulltrúi og Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

MAS

magnusarnar@vesturbyggd.is/+354 450 2300