Forstöðumaður – félagsmiðstöðin VestEnd
Við leitum að öflugum, jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á starfi með ungmennum og vill taka þátt í að skapa fjölbreytt, öruggt og skemmtilegt félagsstarf.
Hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er æskileg.
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði.
- Áhugi fyrir að efla unglingastarf á svæðinu skilyrði
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026
Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Maggý Hjördís Keransdóttir, tómstundafulltrúi, og tekur hún einnig á móti umsóknum.
Starfið felur m.a. í sér skipulagningu og framkvæmd starfs félagsmiðstöðvarinnar í samstarfi við tómstundafulltrúa, með áherslu á jákvætt og uppbyggilegt umhverfi.
Félagsmiðstöðin er að jafnaði opin tvö kvöld í viku, tvo tíma í senn.