Hoppa yfir valmynd

Fræðsla um málþroska barna

Fræðslu­kvöld fyrir foreldra um hvernig hægt er að styðja við orða­forða og málþroska barna á vegum stoð­þjón­ustu Vest­ur­byggðar.


Skrifað: 12. mars 2026

Mánudaginn 16. mars kl. 20:00 verður haldið fræðslukvöld um málþroska barna í Skjaldborgarbíó á Patreksfirði. Fjallað verður um hvernig foreldrar geta stutt við orðaforða barna sinna og eflt málþroska í daglegu lífi.

Viðburðinum verður einnig streymt í Tálknafjarðarskóla á Tálknafirði og í Muggstofu á Bíldudal þannig að foreldrar í fleiri byggðarkjörnum geti fylgst með.

Foreldrar eru hvattir til að mæta og kynna sér hvernig hægt er að styðja við málþroska barna á einfaldan og hagnýtan hátt.