Hoppa yfir valmynd

Fram­kvæmda­leyfi ofan­flóða­varna á Bíldudal

Heima­stjórn Arnar­fjarðar samþykkti á fundi sínum 12. mars 2025 fram­kvæmda­leyfi fyrir ofan­flóða­vörnum á Bíldudal skv. 13. og 14. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og ákvæðum reglu­gerðar nr. 772/2012 með síðari breyt­ingum.


Skrifað: 14. janúar 2026

Fyrir liggur álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum, dags. 27. maí 2022, sem tekur til umhverfismatsskýrslu vegna viðkomandi framkvæmdar, og var það niðurstaða Skipulagsstofnunar að fyrirliggjandi umhverfismatsskýrsla uppfyllti skilyrði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Útgáfa leyfisins byggir á fyrrgreindri umhverfismatsskýrslu, áliti Skipulagsstofnunar auk heimilda gildandi aðal- og deiliskipulagsáætlana.

Útgáfa framkvæmdaleyfisins var birt 14.1.2026 á heimasíðunni og í Skipulagsgáttinni.

Upplýsingar og gögn sem tengjast leyfinu má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins, www.vesturbyggd.is, undir fundargerðum, mál nr. 2503016.

Ákvörðun um útgáfu framkvæmdaleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 4. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011.