Hoppa yfir valmynd

Fram­kvæmdir við lóð Bíldu­dals­skóla

Undan­farið hefur verið unnið að uppbygg­ingu nýrrar lóðar Bíldu­dals­skóla. Mark­miðið með fram­kvæmd­inni er að skapa öruggt, aðlað­andi og fjöl­breytt útisvæði fyrir nemendur skólans, en jafn­framt bæta aðstöðu fyrir íbúa og nærsam­fé­lagið.


Skrifað: 18. september 2026

Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd sem nær yfir bæði  skóla- og leikskólalóð auk svæðisins framan við skólann. Á lóðinni verða meðal annars ný leiktæki, rólur, kastalar, trampólín, boltamörk og körfuboltakarfa. Einnig verður komið fyrir bekkjum, borðum, hjólabogum og öðrum búnaði.

Á lóðinni verða jafnframt nýjar hellulagnir og önnur yfirborðsefni, fallvarnir við leiktæki, gervigras og gúmmíhellur. Þá verða settar upp nýjar girðingar.

Lögð er mikil áhersla á gróður og umhverfi. Gert er ráð fyrir þökulögn, grassáningu, trjá- og runnabeðum og fjölbreyttum gróðri. Á lóðinni verður einnig útikennslusvæði með setaðstöðu og grjóti sem hluta af hönnun svæðisins.

Lóðarframkvæmdinni var skipt upp í þrjú svæði, bílastæði/aðkoma, leikskólalóð og grunnskólalóð. Á árinu stóð til að ljúka framkvæmdum við bílastæði og leikskólalóð en grunnskólalóð var hugsuð í næsta áfanga. Þessi uppskipting var gerð til að unnt væri að vinna að framkvæmdinni í áföngum og ráðast í uppbyggingu svæðisins eftir forgangsröðun og fjármagni hverju sinni.

 

Grunnmynd aðkoma

Hvernig hefur gengið?

Framkvæmdir við lóðina voru boðnar út í apríl og samkvæmt upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að lóðin yrði tilbúin 1. ágúst 2026.

Þau tilboð sem bárust í verkið voru hins vegar öll talsvert yfir kostnaðaráætlun og þar með utan þess fjárhagsramma sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Af þeim sökum var öllum tilboðum hafnað og í framhaldinu gengið til samninga við lægstbjóðanda um framkvæmd verksins með það að markmiði að finna leið til að koma framkvæmdinni af stað innan þeirra fjárhagslegu forsendna sem sveitarfélagið hafði sett.

Um mitt sumar var síðan ákveðið, í samráði við verktakann, að hann myndi draga sig frá verkinu sökum þess að verktakinn sá ekki fram á það að geta sinnt verkinu. Í kjölfarið var leitað til hinna tveggja bjóðendanna og kannað hvort þeir gætu tekið að sér ákveðna verkþætti til að koma framkvæmdinni af stað og tryggja áframhald hennar.

Þessi atburðarás hefur haft umtalsverð áhrif á framvindu verksins og valdið því að framkvæmdin hefur tekið lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir.

Sveitarfélagið er þó mjög ánægt með þá verktaka sem nú koma að framkvæmdinni. Þeir hafa unnið verkið vel og sýnt mikla lipurð og sveigjanleika í allri samvinnu. Það hefur verið afar mikilvægt fyrir framgang verksins og hjálpað til við að halda framkvæmdinni áfram þrátt fyrir breyttar forsendur.

Framundan

Á næstu dögum og vikum verður áfram unnið að þeim verkþáttum sem eftir standa. Á leikskólalóðinni verður unnið að því að taka svæðið í rétta hæð og slétta það með fínum salla. Jafnframt verður lokið við uppsetningu á girðingu umhverfis leikskólalóðina. Stefnt er að því að koma þar upp rólum og sandkassa áður en veturinn gengur í garð.

Framan við skólann verður settur fínn salli í bílastæðið. Með því er bæði verið að hlífa þeirri hellulögn sem þegar hefur verið lögð og skapa öruggara og betra yfirborð fyrir umferð, bæði gangandi og akandi.

Vegna þess að kostnaður við  framkvæmdina hefur reynst hærri en gert var ráð fyrir í kostnaðaráætlun verður ekki mögulegt að ljúka öllum þeim verkþáttum sem upphaflega stóð til að framkvæma á lóðinni á árinu. Því þarf að láta ákveðna hluta framkvæmdarinnar bíða, en áhersla er lögð á að ljúka þeim verkþáttum sem nú eru í gangi og koma lóðinni í gott og öruggt horf.

Þegar framkvæmdum við lóðina lýkur verður til fjölbreytt og vandað leik- og útivistarsvæði við skólann, með góðri aðstöðu til leiks, hreyfingar og samveru. Vonast er til að svæðið verði mikilvæg viðbót við skólaumhverfið og nýtist nemendum, starfsfólki, foreldrum og íbúum vel um ókomin ár.

Verkefnastjóri á umhverfis- og framkvæmdasviði

magnusar@vesturbyggd.is/+354 842 5335