Framlengdur skráningarfrestur í sumarnámskeið og frístund
Skráningarfrestur í sumarfrístund og sumarnámskeið á Patró hefur verið framlengdur til og með föstudagsins 6. júní.
Skrifað: 2. júní 2025
Þriðjudaginn 3. júní hefst sumarfrístund og sumarnámskeið á Patreksfirði fyrir börn í 1.-4. bekk. Sumarfrístund verður alla virka daga frá kl. 08:00-12:00 og sumarnámskeið frá kl. 12:00-16:00.
Skráning fer fram á íbúagátt Vesturbyggðar, þar sem forráðamenn geta skráð börn í sumarfrístund, sumarnámskeið eða bæði. Að því loknu er hægt að velja þá daga sem barnið mun sækja.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrá sumarnámskeiðsins.

