Framúrkeyrsla við nýbyggingu Bíldudalsskóla
Á fundi bæjarstjórnar Vesturbyggðar sem haldinn var 22. september sl. var farið yfir kostnað vegna nýbyggingar Bíldudalsskóla þar sem viðauki við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins var lagður fram og samþykktur.
Skrifað: 22. september 2026
Í lok ágúst lá fyrir að lokakostnaður verkefnisins væri hærri en upphaflega var gert ráð fyrir. Greining sveitarfélagsins leiddi í ljós að áætlaður lokakostnaður verkefnisins er 151 m.kr. hærri en upphaflega var gert ráð fyrir. Helstu skýringar liggja í annmörkum á upphaflegum kostnaðaráætlunum, meðal annars vegna hönnunar-, ráðgjafar- og eftirlitskostnaðar, auk viðbótarverka sem nauðsynlegt var að ráðast í á framkvæmdatíma. Einnig urðu tafir á framkvæmdinni sem leiddu til þess að færa þurfti fjárheimildir og styrki milli fjárhagsára í samræmi við framvindu verkefnisins.
Við greininguna kom fram að ekki hafi verið ráðist í ónauðsynlega verkþætti eða farið óvarlega með fjármuni. Niðurstöður greiningarinnar benda fremur til þess að kostnaðarmat, áætlanagerð og eftirfylgni með heildarkostnaði verkefnisins hafi ekki verið nægilega nákvæm.
Í kjölfar greiningarinnar hefur sveitarfélagið ákveðið að styrkja núverandi verklag sitt við undirbúning og eftirfylgni stærri framkvæmdaverkefna, meðal annars með auknu kostnaðareftirliti, skýrari upplýsingagjöf og reglubundnari yfirferð á stöðu verkefna.
Mikilvægt er að dreginn verði lærdómur af verkefninu segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar og málið sé litið alvarlegum augum af stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins. Lögð verði rík áherslu á að stjórnendur sveitarfélagsins tryggi að þær úrbætur sem nú hefur verið ákveðið að ráðast í verði innleiddar.
