Hoppa yfir valmynd

Frestur til að móttaka fram­boðs­lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2026 fram­lengdur

Þar sem aðeins einum fram­boðs­lista var skilað áður en fram­boðs­fresti lauk á hádegi föstu­daginn 10.04.2026 fram­lengist frestur til að skila inn fram­boðs­listum til kl. 12.00 á hádegi sunnu­daginn 12.04.2026. Yfir­kjör­stjórn Vest­ur­byggðar tekur á móti fram­boðs­listum í ráðhúsi Vest­ur­byggðar að Aðalstræti 75 á Patreks­firði milli kl. 11.00 og 12.00 sunnu­daginn 12.04.2026.


Skrifað: 10. apríl 2026

Gögn sem þurfa að fylgja framboðum eru tilkynning um framboð þar sem fram kemur heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstafur þeirra. Einnig þarf að tilkynna hverjir tveir eru umboðsmenn listans ásamt samþykki þeirra. Jafnframt skal skila framboðslista með undirrituðu samþykki frambjóðenda sem má vera með rafrænni undirritun eða á pappír. Vesturbyggð býður framboðum að skila undirskriftum í rafrænu meðmælakerfi.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu landskjörstjórnar eða hjá yfirkjörstjórn Vesturbyggðar.
Finnbjörn Bjarnason, formaður, sími 892 7890.
Sigurvin Hreiðarsson, sími 891 8520.
Edda Kristín Eiríksdóttir, sími 831 9675.