Hoppa yfir valmynd

Frístunda­styrkir fyrir börn og ungmenni

Samþykkt hefur verið að taka upp frístunda­styrki fyrir börn og ungmenni á aldr­inum 6–18 ára frá og með árinu 2026. Styrk­irnir eru hluti af aðgerðum til að styðja við þátt­töku í skipu­lögðu frístund­a­starfi.


Skrifað: 7. janúar 2026

Samþykkt hefur verið að innleiða frístundastyrki fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6–18 ára. Styrkirnir taka gildi á árinu 2026 og nemur upphæð styrks þessa árs kr. 40.000,-.

Markmið frístundastyrkja er að auðvelda börnum og ungmennum að taka þátt í fjölbreyttu frístundastarfi, svo sem íþróttum, list- og menningarstarfi eða öðru skipulögðu tómstundastarfi sem stuðlar að virkni, félagslegri þátttöku og heilbrigðum lífsstíl.

Unnið er að því að móta nánari reglur um styrkina og setja upp umsóknarferli. Þar verður meðal annars kveðið á um skilyrði, framkvæmd og hvernig styrkirnir nýtast í reynd.

Þegar regluverk og umsóknarferli liggja fyrir verða frístundastyrkirnir auglýstir sérstaklega og þá veittar frekari upplýsingar um hvernig hægt verður að sækja um.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

NLS

nannalilja@vesturbyggd.is/+354 450 2300